Tisa-leyniskjöl og ísland þar á meðal aðildaríkja
4.2.2015 | 21:11
PSI segir að tillagan gangi út frá því að heilbrigðisþjónusta sé vara eins og hver önnur sem hægt sé að kaupa og selja á markaði. Samtökin segja að slíkt sjónarmið líti fram hjá almannahag og muni auka ójöfnuð verulega. Samkvæmt prófessor Jane Kelsey, breskum sérfræðingi í þjónustuviðskiptum, myndi sú lausn sem lögð er til í tillögunni gagnast auðugari einstaklingum og einkafyrirtækjum innan heilbrigðisgeirans. Peningar myndu hins vegar sogast úr heilbrigðiskerfum þjóða, en lág fjárfesting í þeim er einmitt ein þeirra ástæða sem nefnd er sem rök fyrir því að bjóða upp á aukna aflandsþjónustu innan heilbrigðisgeirans. Þannig stækki lausnin eitt þeirra vandamála sem hún á að leysa. Mikil leynd hvílir yfir umræddum skjölum og viðræðunum í heild. Þær þykja gríðarlega viðkvæmar, enda verið að sýsla með grundvallarréttindi á vettvangi sem lýtur í raun engum reglum. Á forsíðu skjalanna sem Wikileaks lét Kjarnann hafa sagði meðal annars að ekki mætti aflétta trúnaði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TISA-samkomulagið taki gildi eða fimm árum eftir að viðræðunum ljúki, fari svo að samningar náist ekki. Á skjölunum stendur að þau verði að âžvera vistuð í lokaðri eða öruggri byggingu, herbergi eða hirslu...... Ath. Sjá kjarninn.is
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 12.2.2015 kl. 13:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.